Færsluflokkur: Tölvur og tækni
29.12.2009 | 12:58
illa unnin frétt
Drengur fær bætur fyrir handtöku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.5.2009 | 21:13
leiðinlegt...
Nú fer væntanlega að líða að því að ,,háværar" raddir heyrist um
að óska eigi eftir því að maðurinn verði framseldur til Íslands og
að hann fái að afplána sinn dóm þar. Þvílíkt kjaftæði að mínu mati,
ef maður brýtur af sér hlýtur að vera eðlilegt að maður sitji af sér
á þeim stað og við þær aðstæður sem þar búa, hvaða skilaboð væri
annars verið að senda þessu fólki? Fínt, bara enn einn ,,haugurinn"
sem við erum þá a.m.k. laus við á meðan......
Ég á eftir að deyja hérna" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.5.2008 | 10:45
Frétt á visir.is - björgunarsveitarbílar stöðvaðir
Sá í gær þessa frétt hjá mbl.is
Deilt um litaða olíu á björgunarsveitabílum
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/05/28/deilt_um_litada_oliu_a_bjorgunarsveitabilum/
Þar sem eftirlitsmenn á vegum Vegagerðarinnar eru sagðir hafa haft afskipi af björgunarsveitarbílum og sett út á að þeir væru knúnir áfram af litaðri olíu, sem Vegagerðin vill meina að þeir megi ekki í þessu tilviki.
Daginn eftir (í dag), birtist síðan stórfrétt hjá visir.is
með fyrirsögninni
Lögreglan stöðvaði björgunarsveitabíl
http://www.visir.is/article/20080529/FRETTIR01/347028255
Eftir því sem ég veit best voru það eftirlitsmenn á vegum Vegagerðarinnar sem komu alfarið að þessu máli og finnst frekar lélegt, eins og þetta lítur út alla vega, að visir.is sé að fá lánaða frétt af mbl.is og hafa hana svo ekki einu sinni rétta.
28.5.2008 | 10:09
Svartir blettir
Las þetta í greininni að af -augljósum- ástæðum væri ekki venja að birta almenningi kort af svörtum blettum í umferðinn. Svartir blettir, er það ekki það sama og menn meina á venjulegri íslensku þeir staðir þar sem óhöpp og slys eiga sér oftar stað en annars staðar? Sem þýðir á mannamáli HÆTTULEGIR staðir og ég fyrir mitt leyti væri alveg til í að vita að ég væri að koma að gatnamótum eða öðrum stöðum þar sem aðrir vegfarendur hafa lent í vandræðum á.
Ég spyr, fyrir hvern er verið að vinna þessar upplýsingar, tölfræði og annað, er það BARA fyrir Vegagerðina eða mættum kannski við líka ómerkilegir vegfarendur, sem borgum fyrir Vegagerðina, kannski einnig fá þessar upplýsingar?
Gaman væri einnig að vita hver og hjá hvaða stjórnsýsluapparati á að hafa látið þessi ummæli út úr sér og hvort viðkomandi þyrði að koma fram undir nafni og ræða þetta, ég held að ég sé ekki sá eini sem er að fjargviðrast út af þessu í bloggheimum.
Eftirlit með „svörtum blettum“ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.5.2008 | 20:30
iPhone 3G "staðfestur"
Það væri mjög gaman að sjá umrædda -fréttatilkynningu- sem fréttamaður talar um,
sjálfur hef ég hvergi á netinu fundið nokkra staðfestingu frá Apple.com um þetta,
reyndar segir orðrómur á netinu að iPhone verði 3G en varla er nú hægt að byggja fréttir
á slíku?
En Mbl.is virðist þó gera það og eftir því sem mér hefur sýnst í gegnum tíðina er þessi -frétt-
frá mbl.is ekkert einsdæmi.
Skora á blaðamenn þar á bæ að vanda sig (betur).
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Óskar Gunnar Óskarsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar